Um okkur
Suður-Vík var annar tveggja bæja í Vík áður en þéttbýlið fór að myndast og var sannkallað stórbýli í tíð Halldórs Jónssonar kaupmanns, sem byggði húsið árið 1902. Húsið var íbúðarhús fram á 8. áratug síðustu aldar en eftir það þjónaði það ýmsum hlutverkum; sem dvalarheimili aldraðra, tónskóli og loks leikskóli, þar til við tókum við því árið 2012. Ýmsar breytingar höfðu verið gerðar í áranna rás en við okkar endurbætur reyndum við eftir fremsta megni að endurvekja upprunalegan anda hússins, og tókst vel til. Okkur þykir afar vænt um húsið og er mikið í mun að gestum okkar líði sem best og njóti þess að borða hjá okkur!

